FERÐASUMARIÐ 2023
KOMDU MEÐ OG UPPLIFÐU ÍSLAND!
Vinsælu Vestfirðir!
Í sumar munum við leggja áherslu á Vestfirðina sem nutu fádæma vinsælda síðastliðin tvö sumur, enda fegurðin einstök.
Fjöllin, firðirnir og fjölbreytt sagan fylgir okkur hvert sem við förum.
Vinsælasta ferðin okkar sl. sumar
VESTFIRÐIR SEM ALDREI FYRR
- sjón er sögu ríkari
Það er engin tilviljun að Vestfirðir hafa nú verið kosnir einn af mest spennandi áfangastöðum í heimi fyrir árið 2022 af Lonely Planet, stærsta ferðabókaútgefanda heims.
19 MANNA SMÁRÚTUR
Það fer vel um þig í 19 manna smárútunum okkar.
PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA
Þægilegur og jákvæður fararstjóri í ógleymanlegri og skemmtilegri ferð.
KOMDU MEÐ OG UPPLIFÐU ÍSLAND!
Upplifðu Ísland verkefnið varð til í átakinu “Ferðumst innanlands” sumarið 2020.
Þetta skemmtilega verkefni hlaut frábærar viðtökur, enda um einstakt tækifæri að ræða til að skoða Ísland að afstöðnu því hléi á milljóna ferðamennsku sem senn færist aftur til fyrra horfs.